Aðalverktaki húsfélaga
Viðhald húsfélagsins
á einum stað.
Frá fyrstu skoðun til fullkláraðs verks. Húsfélagið þarf ekki að ráða ráðgjafa, útbúa útboð, leita að verktökum og finna svo einhvern til að halda utan um framkvæmdina.
Ferlið
Fjögur skref, einn ábyrgðaraðili
- 1
Fyrsta samtal
Þið segið okkur hvað þið vitið — eða vitið ekki. Reiknivélin gefur fyrstu hugmynd um umfang.
- 2
Skoðun og magntaka
Við skoðum húsið, mælum og skráum. Ekkert verð byggir á ágiskun.
- 3
Tilboð og húsfundur
Þið fáið sundurliðað tilboð og kostnað á íbúð — tilbúið til að leggja fyrir húsfund.
- 4
Framkvæmd og skil
Við framkvæmum, stjórnum verkinu og skilum með skilamöppu og ábyrgð.

Hvert hús á sér sögu.
Við höldum utan um hana.
Skoðanir, teikningar, magntölur og áætlanir safnast á eignina — og fylgja húsfélaginu milli verkefna og stjórna.
Þjónusta
Hvar sem þið eruð í ferlinu
Ástandsskoðun
Við skoðum húsið og segjum ykkur hvað þarf að gera.
Lesa meira →Heildarviðhaldsúttekt
Margra ára viðhalds- og fjárhagsáætlun fyrir húsfélagið.
Lesa meira →Framkvæmdir
Við tökum verkið að okkur sem aðalverktaki, frá samningi til skila.
Lesa meira →Ráðgjöf og eftirlit
Aðstoð við undirbúning, gögn og eftirfylgni.
Lesa meira →Hvernig við vinnum
Einn aðili ber ábyrgð á öllu verkinu
Verksamningur beint
Við erum ekki milliliður. Við gerum tilboð og verksamning við húsfélagið og berum ábyrgð á verkinu, göllum og tímafrestum.
Verð byggt á magntölum
Tilboð byggja á mældum og staðfestum magntölum. Kerfið leyfir ekki tilboð út frá ágiskun.
Aukaverk aðeins með samþykki
Ekkert aukaverk fer í uppgjör án þess að húsfélagið hafi samþykkt það skriflega.
Vitið þið ekki hvar á að byrja?
Þá er ástandsskoðun rétta fyrsta skrefið.